
Einfalt fyrir starfsmenn
Starfsmaðurinn skráir aksturinn í appinu um leið og tímana, úti á verkstað. Hann velur akstursvöru, skráir á verkið og málið er dautt. Það þarf hvorki aksturbók né miða sem einhver á að muna eftir seinna.
Þú ræður hvernig akstur er verðlagður
Þú stofnar þínar eigin akstursvörur og hver vara hefur sitt verð og sína einingu. Ferð, innanbæjargjald, km-gjald, Selfossgjald, eða bara það sem hentar þínum rekstri. Starfsmaðurinn velur réttu vöruna og verðið sér um sig sjálft.
Ólíkar akstursvörur eftir ökutækjum
Hvert ökutæki getur haft sínar eigin akstursvörur. Sendibíllinn er með sínar vörur og sín verð og stærri ökutæki með allt aðrar. Kranabíllinn rukkar ekki eins og sendibíllinn og kerfið heldur því réttu fyrir þig.
Tækjaleiga: rukkaðu fyrir tækin þín
Þú átt oft dýr verkfæri og tæki sem fara á milli verka og enda hvergi í rukkuninni. Í Unni skráir þú tæki á verk og rukkar fyrir notkun þeirra, alveg eins og fyrir akstur, efni og vinnu. Þannig fæst greitt fyrir búnaðinn sem verkið notaði í raun.
Tækin sitja á verkinu ásamt tímum, akstri og efni af lager, og fara með þegar þú gerir reikninginn. Í stað þess að tækjakostnaður hverfi inn í almennan rekstur sérðu hann á hverju verki og getur rukkað fyrir hann þar sem það á við.
Þetta munar meiru en margur heldur. Tækin kosta í innkaupum, viðhaldi og endurnýjun, og sá kostnaður fellur á fyrirtækið hvort sem einhver man eftir að rukka fyrir notkunina eða ekki. Þegar tækin eru skráð á verkin sérðu líka hvaða búnaður er raunverulega í vinnu og hvað stendur ónotaður, sem er góður grunnur þegar kemur að því að endurnýja.


Aksturinn og tækin eru tilbúin þegar reikningurinn er gerður
Af því að hver skráning er vara með verði og einingu þarftu ekkert að taka saman eða reikna í lokin. Akstur og tæki flæða á sölureikninginn ásamt tímum og efni, rétt verðlögð frá fyrsta degi. Þú rukkar fyrir hverja ferð sem var farin og hvert tæki sem var notað, ekki þau sem einhver man óljóst eftir.
Á teikniborðinu
Tvennt er framundan í aksturshlutanum. Starfsmenn munu geta skráð kílómetrastöðu ökutækja í appinu og skilað henni beint til Skattsins. Við ætlum líka að tengja Unni við opin flotastýringarkerfi svo aksturinn flæði sjálfkrafa inn úr flotastýringunni sem fyrirtækið notar.
Rukkaðu fyrir hverja ferð og hvert tæki
Prófaðu Unni frítt í 30 daga. Enginn uppsetningarkostnaður, engin binding og þjónustan er alltaf frí.