Þjónustuskilmálar Unnur

Síðast uppfært

18. mars 2026

Þjónustuskilmálar Unnur ehf.

Eftirfarandi þjónustuskilmálar gilda frá og voru síðast uppfærðir 18. mars 2026.

1. Almenn ákvæði

Með því að nota þjónustu okkar samþykkirðu að vera bundin(n) af þessum þjónustuskilmálum, gagnavinnslusamningi, og viðbótarákvæðum og -skilmálum sem þér kunna að vera veittir á vefsvæðinu okkar áður en þú pantar þjónustu. Ef ekki er hægt að leysa einhver ákvæði í þessum skjölum með öðrum hætti en þannig að upp komi ágreiningur á milli eða meðal þeirra, skal eftirfarandi forgangsröð gilda varðandi túlkun og beitingu ákvæða þessara þjónustuskilmála: (1) í fyrsta lagi, sérskilmálar og/eða viðbótarskilmálar; (2) í öðru lagi, gagnavinnslusamningur; (3) í þriðja lagi, þessir þjónustuskilmálar.
Ef þú samþykkir þessa skilmála fyrir hönd annars aðila, eins og vinnuveitanda þíns eða fyrirtækisins sem þú vinnur fyrir, staðfestir þú að þú hafir lagaheimild til að binda þann aðila. Ef þú samþykkir ekki þessa þjónustuskilmála, gagnavinnslusamning, ásamt sérskilmálum er þér óheimilt að nota þjónustuna.

2. Skilgreiningar

Þjónustuveitandi:

Unnur ehf., Stórholti 3, 603 Akureyri, kt. 620725-1100.

Viðskiptavinur:

Einka- eða lögaðili sem notar þjónustuna.

Viðskiptavinagögn:

Skrár og önnur stafræn gögn og upplýsingar sem viðskiptavinurinn hleður upp í þjónustuna eða skráir í hana, þar á meðal bókhaldsgögn, reikningar, tímaskráningar og verkefnaupplýsingar.

Persónuupplýsingar:

Upplýsingar sem tengjast auðkenndum eða auðkennanlegum einstaklingi.

Notandi:

Einstaklingur sem fær heimild til að nota þjónustuna fyrir hönd viðskiptavinar.

Gögn:

Vefsvæðið, kerfið, hugbúnaður og allt efni, þjónusta og/eða vörur sem eru í boði á eða í gegnum verkvanginn sem veittur er af þjónustuveitandanum.

Sérskilmálar:

Öll sérstök ákvæði, skilmálar og skilyrði sem aðilarnir hafa samþykkt sem víkja frá þessum skilmálum.

Notandaaðgangur:

Aðgangur notanda sem tengdur er viðskiptavininum.

Aðgangsstjóri:

Einstaklingur sem hefur umsjón með þjónustu notenda fyrir viðskiptavin.

Skilmálar:

Nýjasta útgáfan af þessum skilmálum og skilyrðum varðandi notkun á þjónustunni, þar á meðal gagnavinnslusamningur.

3. Þjónustan

Samningur þessi veitir viðskiptavini aðgang að hugbúnaðarlausn Unnur fyrir verkbókhald, verkefnastjórnun, tímaskráningu, reikningagerð og tengda starfsemi. Þjónustan er veitt sem skýjalausn (SaaS) og er aðgengileg í gegnum vafra og farsímaforrit.
Í aðgangi þjónustukaupa fellst notkunarréttur á samningstíma, en ekki eignarréttur. Viðskiptavini er óheimilt að framselja hugbúnaðarlausnina eða notkun lausnarinnar með nokkrum hætti, breyta eða fela öðrum að breyta hugbúnaðinum, brjóta hann niður nema Unnur ehf. veiti skriflegt samþykki fyrir slíku.
Við gerum okkar besta til að gera þjónustuna viðskiptavinum og notendum aðgengilega allan sólarhringinn, alla daga vikunnar, fyrir utan skipulagða niðritíma með fyrir fram tilkynningu til notenda.

4. Skyldur viðskiptavinar

Viðskiptavinur skal veita Unnur ehf. nauðsynlegar og æskilegar upplýsingar til þess að Unnur ehf. geti sinnt skyldum sínum samkvæmt samningi þessum. Viðskiptavinur ber ábyrgð á því að tryggja að hann hafi þann vél- og hugbúnað sem nauðsynlegur er svo hægt sé að veita þjónustuna.
Það er á ábyrgð viðskiptavinar að hugbúnaður hans sé laus við vírusa, trójuhesta eða annars konar hugbúnað eða kóða sem hafa skaðlega eiginleika, að hugbúnaður hans sé á viðurkenndu formi, og hugbúnaður hans geti ekki, á einn eða annan hátt, skaðað eða haft slæm áhrif á hugbúnaðarlausn Unnur ehf. eða þjónustuna.
Viðskiptavinur ber ábyrgð á nákvæmni og réttmæti þeirra gagna sem hann skráir í kerfið, þar á meðal bókhaldsfærslur, reikninga og tímaskráningar. Unnur ehf. ber ekki ábyrgð á villum sem rekja má til rangra eða ófullnægjandi gagna frá viðskiptavini.
Með samþykki þessara skilmála skuldbindur viðskiptavinur sig til að nota ekki sjálfvirkan hugbúnað, forrit eða aðrar aðferðir til að fá aðgang að, afrita eða fylgjast með einhverjum hluta af þjónustunni nema með skriflegu leyfi Unnur ehf.. Viðskiptavinur skal ekki reyna á nokkurn hátt að sækja, birta eða greina undirliggjandi forritskóða hugbúnaðarins. Komi til brots á þessum ákvæðum áskilur Unnur ehf. sér rétt til að stöðva aðgang viðskiptavinar tafarlaust.

5. Verð og greiðslur

Verð, eiginleikar og takmörk þjónustunnar velta á þeirri verðáætlun sem sett er upp í sérskilmálum sem og þeim breytingum sem viðskiptavinur á frumkvæði að. Viðskiptavinur getur sagt upp áskriftinni hvenær sem er, og tekur uppsögnin gildi 30 dögum síðar miðað við mánaðarmót.
Unnur ehf. sendir reikninga til viðskiptavina fyrsta hvers mánaðar fyrir notkun undangengins mánaðar. Krafa fellur á eindaga sjö dögum eftir útgáfu hennar. Sé krafa ekki greidd innan 15 daga eftir eindaga áskilur Unnur ehf. sér rétt til að takmarka eða loka aðgangi að þjónustunni þar til greiðsla berst. Við vanskil eða seinkun á greiðslu áskilur Unnur ehf. sér rétt til að rukka dráttarvexti í samræmi við gildandi lög.

6. Öryggi og persónuupplýsingar

Unnur ehf. leggur áherslu á að tryggja öryggi gagna út frá sjónarmiðum persónuverndar í samræmi við lög nr. 90/2018 um persónuvernd og vinnslu persónuupplýsinga og reglugerð (ESB) 2016/679 (GDPR). Færslusaga í gagnagrunnum hugbúnaðar Unnur ehf. geymir þannig einungis gögn sem nauðsynleg eru til að tryggja rekstraröryggi og áreiðanleika hugbúnaðarins.
Nánari upplýsingar um meðferð persónuupplýsinga er að finna í persónuverndarstefnu Unnur ehf.

7. Aðgangur viðskiptavinar

Viðskiptavinur ber ábyrgð á öllum aðgerðum sem eiga sér stað á notandaaðgangi sínum. Notandaaðgangur getur einnig verið veittur af aðgangsstjóra viðskiptavinar sem ber ábyrgð á umsjón með notandaaðgangi starfsmanna sinna.
Viðskiptavinur skal gæta þess að aðgangsorð og innskráningarupplýsingar séu varðveitt á öruggan hátt og tilkynna Unnur ehf. tafarlaust ef grunur leikur á óheimilum aðgangi.

8. Takmörkun ábyrgðar

Við berum ekki ábyrgð á bilunum í þjónustunni eða hugbúnaðargöllum og tökum ekki á okkur neinn kostnað vegna slíkra atvika, beins eða óbeins taps eða glataðs hagnaðar og greiðum ekki bætur vegna mögulegra óþæginda sem viðskiptavinurinn gæti orðið fyrir.
Unnur ehf. ber ekki ábyrgð á fjárhagslegu tjóni sem hlýst af röngum bókhaldsfærslum eða misnotkun viðskiptavinar á kerfinu. Þjónustan kemur ekki í stað faglegs bókhalds- eða skattaráðgjafa.
Heildaruppsöfnuð ábyrgð Unnur ehf. á gildistíma þessa samnings skal ekki vera hærri en upphæð sem jafngildir þóknun fyrir sex mánaða notkun á þjónustunni, miðað við þann tíma er tjónstilvik á sér stað.

9. Hugverkaréttindi

Vörumerki okkar og vöruheiti mega aðeins vera notuð af þriðja aðila ef hann hefur fengið skriflegt samþykki frá okkur áður en þeir nota það í útgefnu efni eða á vefsvæðum. Öll hugverkaréttindi að hugbúnaðarlausninni og tengdu efni eru og verða áfram eign Unnur ehf..

10. Breytingar

Við áskiljum okkur rétt, að eigin ákvörðun, til að breyta þessum þjónustuskilmálum hvenær sem er. Nema annað sé sérstaklega tekið fram verða slíkar breytingar tilkynntar í gegnum þjónustuna með 30 daga fyrirvara. Kannaðu reglulega hvort breytingar hafi verið gerðar á skilmálunum. Áframhaldandi notkun þín á þjónustu okkar eftir slíkar breytingar jafngildir bindandi samþykki á slíkum breytingum.

11. Óviðráðanleg atvik (Force Majeure)

Við berum ekki ábyrgð á því ef þær skyldur sem hér eru nefndar eru ekki uppfylltar eða aðeins að hluta ef ástæður þess eru sérstakar aðstæður sem við gátum ekki séð fyrir, komið í veg fyrir eða fjarlægt með nokkrum hætti (Force Majeure aðstæður). Við skulum tilkynna viðskiptavininum um Force Majeure aðstæðurnar innan 5 (fimm) almanaksdaga eftir að þær koma upp og sýna um leið fram á að við höfum gripið til allra skynsamlegra úrræða og ráðstafana til að draga úr kostnaði eða neikvæðum afleiðingum.

12. Þagnarskylda

Sem hluta af notkun þjónustunnar kann annar aðilinn að fá aðgang að trúnaðarupplýsingum hins, þar á meðal viðskiptaupplýsingum, tæknilegum upplýsingum og hugverkaréttindum. Báðir aðilar skuldbinda sig til að nota slíkar trúnaðarupplýsingar eingöngu í þeim tilgangi að efna samninginn og birta þær ekki, beint eða óbeint, þriðja aðila nema nauðsyn krefjist til samningsefnda.
Þessi þagnarskylda gildir á samningstíma og varir áfram eftir lok samnings. Ákvæðið á ekki við um upplýsingar sem eru, án skar annars aðila, þekktar almenningi eða þar sem lögboðin lög krefjast birtingar.

13. Notkun gagna

Viðskiptavinur veitir Unnur ehf. rétt til aðgangs að og notkunar á gögnum sem eru veitt með notkun þjónustunnar í eftirfarandi tilgangi:

Þróun og umbætur

Unnur ehf. getur greint notkunarmynstur og þarfir notenda í þeim tilgangi að bæta þjónustuna og notendaupplifunina.

Öryggi

Unnur ehf. getur greint innskráningar- og lotugögn og atvikaskrár til að koma í veg fyrir, rannsaka og skrá öryggisvandamál.

Tölfræði og rannsóknir

Unnur ehf. getur notað samansafnaðar og nafnlausar tölfræðilegar upplýsingar í almennri skýrslugerð og markaðssetningu.

Lögbundnar skyldur

Unnur ehf. getur notað gögn til að uppfylla lagalegar og stjórnvaldsreglur, þar á meðal til að svara fyrirspurnum yfirvalda.
Öll vinnsla persónuupplýsinga fer fram í samræmi við gagnavinnslusamning og persónuverndarstefnu Unnur ehf..

14. Gildandi lög

Þessir þjónustuskilmálar skulu gerðir og túlkaðir samkvæmt íslenskum lögum. Ef eitthvert ákvæði skilmálanna verður dæmt ógilt eða óhæft til fullnustu dregur það ekki úr gildi eða fullnustuhæfi annarra ákvæða. Komi upp ágreiningur eða deilur milli viðskiptavinarins og þjónustuveitandans varðandi þessa þjónustuskilmála skulu aðilarnir reyna að ná sáttum. Ef sættir nást ekki skulu allar óleystar deilur, ágreiningur og kröfur sem upp koma vegna þessara þjónustuskilmála eða tengjast þeim, brotum á þeim, riftun eða gildi, leystar fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur.

15. Sérstakir skilmálar

Viðskiptavinurinn og þjónustuveitandinn geta samið um sérstaka skilmála sem víkja frá þessum skilmálum. Allir slíkir samningar verða að vera undirritaðir af til þess bærum fulltrúum beggja aðila, og skulu ganga framar þessum skilmálum.

16. Uppsögn

Þú getur hætt að nota þjónustuna hvenær sem er. Við áskiljum okkur rétt til að hætta að veita þjónustuna eða færa veitingu þjónustunnar í hendur einhvers þriðja aðila með því að tilkynna viðskiptavininum um það með minnst 6 mánaða fyrirvara. Í slíku tilfelli fá viðskiptavinir sem hafa keypt þjónustu sem nær lengra en fyrirvarinn endurgreiðslu á þeim mánuðum sem þjónustan var ekki veitt.
Við áskiljum okkur rétt til að hætta að veita þjónustuna, fyrirvaralaust, ef viðskiptavinur eða notandi brýtur gegn þessum þjónustuskilmálum.
Við uppsögn eða lok þjónustu á viðskiptavinur rétt á að fá gögn sín afhent á algengu stafrænu formi í allt að 30 daga eftir lok þjónustu, að því tilskildu að hann óski þess skriflega.

Hafðu samband

Ef þú hefur einhverjar spurningar eða vilt gera athugasemdir við notkunarskilmála þessa geturðu haft samband við þjónustuteymi okkar í gegnum netfangið hjalp@unnurverk.is.

© 2026 Unnur ehf.