Vikuplan, tímalína og stöðutafla verka í Unni

Yfirsýn yfir öll verkin, á þínum forsendum

Verkskipulag safnar öllu sem er í gangi á einn stað og gefur þér þrjú sjónarhorn á sömu verkin: vikuplan fyrir daglegu röðunina, tímalínu fyrir heildarmyndina og stöðutöflu fyrir framvinduna. Þú velur það sem hentar hverju sinni, og allt teymið vinnur út frá sömu upplýsingunum.

Í stað þess að halda skipulaginu í hausnum, á tússtöflu eða í excel-skjali sem enginn annar sér, hefur þú það lifandi á einum stað. Þegar eitthvað breytist uppfærist það hjá öllum, svo engin misvísandi útgáfa af planinu er á milli manna.

Vikuplan: hver er hvar

Sjáðu alla vikuna fram fyrir þig: hvaða starfsmenn eru á hvaða verki hvaða dag. Þú raðar fólki á verk með því að draga og sleppa, og allir vita hvert þeir eiga að mæta. Engin ringulreið á mánudagsmorgni og engin símtöl um hvar hver á að vera.

Tímalína: skipulagðu verkin þín

Tímalínan sýnir verkin þín hlið við hlið á sama ásnum, frá byrjun til afhendingar. Þú sérð hvaða verk skarast, hvað er í gangi hvenær og hvort þú ert að lofa of miklu á sama tíma. Þegar eitt verk hliðrast sérðu strax hvað það hefur áhrif á það sem á eftir kemur.

Stöðutafla: færðu verkin áfram

Haltu utan um stöðu hvers verks á einfaldri töflu: að gera, í vinnslu, klárað. Þú dregur verk milli dálka eftir því sem þeim miðar. Allt teymið sér sömu töfluna og sömu stöðuna, svo enginn þarf að spyrja hvar hlutirnir standa.

Ein yfirsýn yfir allt

Vikuplan, tímalína og stöðutafla vinna saman ofan á sömu verkunum. Þú velur það sjónarhorn sem hentar hverju sinni, daginn, heildina eða stöðuna, án þess að tvískrá neitt. Sama verkið, þrjár leiðir til að horfa á það.

Verkhlutar: skiptu verkinu upp

Stór verk eru sjaldan ein heild. Með verkhlutum skiptir þú verki upp í smærri einingar, til dæmis hæðir, áfanga eða aðskilda verkþætti. Tímar, efni og akstur skrást þá á réttan verkhluta, sem gefur þér nákvæmari mynd af því hvar kostnaðurinn liggur og hvaða hluti verksins skilar mestu.

Það auðveldar líka rukkun: þú getur gert reikning fyrir einn verkhluta þegar honum er lokið, í stað þess að bíða eftir öllu verkinu. Fyrir löng verk þýðir það jafnari innkomu og skýrari yfirsýn yfir hvað er búið að rukka og hvað ekki. Þú getur líka borið saman verkhluta milli verka og séð hvað tekur alltaf lengri tíma en áætlað var, svo næsta tilboð verður nákvæmara.

Verki skipt upp í verkhluta í Unni

Náðu utan um öll verkin

Fáðu heildaryfirsýn yfir hvað er í gangi og hvað er eftir. Enginn uppsetningarkostnaður, engin binding og þjónustan er alltaf frí.