Skjáskot af innsendum verkbeiðnum í Unni

Engin beiðni týnist lengur

Þegar beiðnirnar koma inn á einn stað hættir þú að treysta á minnið og lausa miða. Þú sérð hvað hefur borist, hverju er ósvarað og hvað er komið af stað.

Réttar upplýsingar strax í fyrstu ferð

Eyðublaðið spyr um það sem þú þarft að vita til að geta metið verkið. Lýsing, staðsetning og tengiliður fylgja beiðninni sjálfri.

Frá beiðni að tilboði án þess að slá inn aftur

Beiðnin er upphafið. Þú vinnur úr henni beint í Unni, gerir tilboð og kemur verkinu af stað þegar það er samþykkt.

Þú lítur betur út gagnvart verkkaupanum

Verkkaupinn fær skýrt eyðublað í stað þess að elta þig í síma. Beiðnin er komin á réttan stað um leið og hún er send.

Settu eyðublaðið þar sem verkkaupinn er

Eyðublaðið er ekki bundið við einn stað. Þú getur sett það beint inn á heimasíðuna þína, sent hlekkinn á viðskiptavin eða haft það opið á verkstað. Verkkaupinn þarf hvorki aðgang að kerfinu né neitt sett upp.

Fyrirspurnirnar koma inn í sama formi í hvert sinn. Þú ert alltaf með sömu upplýsingarnar fyrir framan þig þegar þú metur hvað næsta verk kostar og hvenær þú kemst í það.

Eyðublað fyrir verkbeiðni sem verkkaupi fyllir út

Leiðin frá fyrirspurn að unnu verki

Verkbeiðnin er fyrsti hlekkurinn í keðju sem endar á sölureikningi. Beiðnin kemur inn, þú gerir tilboð út frá henni, verkkaupinn samþykkir rafrænt og samþykkta tilboðið verður að verki. Allt gerist í sama kerfi og þú sérð hvar hver beiðni stendur.

Ferlið frá verkbeiðni yfir í tilboð og verk í Unni

Engin tvískráning milli skrefa

Upplýsingarnar sem verkkaupinn sendir fylgja með frá fyrstu beiðni yfir í tilboð og áfram í verkið. Enginn þarf að afrita nafn, heimilisfang eða verklýsingu á milli kerfa.

Þegar tilboðið er samþykkt er verkið tilbúið fyrir teymið. Þú heldur utan um ferlið án lausra tölvupósta, miða eða minnisatriða.

Hættu að halda utan um beiðnir í hausnum

Prófaðu Unni frítt í 30 daga. Enginn uppsetningarkostnaður, engin binding og þjónustan er alltaf frí.