Rafrænir reikningar frá birgjum paraðir við verk í Unni

Rafrænir reikningar flæða sjálfkrafa inn

Reikningar frá birgjum eins og Byko og Húsasmiðjunni berast beint inn í kerfið. Þú þarft ekki að sækja þá, skanna þá eða slá þá inn. Efnið er komið inn um leið og birgirinn sendir reikninginn, svo þú safnar ekki lengur pappírsreikningum úr mörgum áttum og hættir að vinna í excel skjölum í lok mánaðar.

Efnið parast við rétt verk

Kerfið raðar efninu á réttu verkin svo þú sérð nákvæmlega hvað hvert verk kostaði í efni. Þannig veistu alltaf hver raunverulegur efniskostnaður verksins er, ekki ágiskun heldur tölur beint úr reikningum birgjanna. Þú sérð strax hvort verk er að skila sér eða hvort efnið er farið að éta framlegðina.

Full stjórn á afslætti og álagningu

Þú sérð afsláttinn sem þú færð frá birgjum og stýrir svo áfram álagningunni sem þú setur á efnið út til verkkaupa. Allt er sýnilegt og hægt að laga, svo þú tapar ekki framlegð á efnissölu. Ekkert efni fer út á kostnaðarverði fyrir slysni, og þú ræður sjálfur hvað þú leggur ofan á.

Ekkert efni gleymist

Af því að efnið er komið inn og parað við verkið er það tilbúið þegar þú gerir reikninginn. Auðvelt er svo að bæta við auka efnisskráningum út af lager, starfsmenn geta gert það við tímaskráningu og stjórnendur þegar þeir senda út reikning. Við viljum að þú gleymir aldrei aftur að rukka efni.

Haltu utan um rekstrarkostnaðinn

Þegar þú færð inn rafrænan reikning koma líka inn reikningar frá aðilum sem ekki á að áframselja. Þá er hægt að merkja þá hratt á rekstur eða flokka þá á mismunandi rekstrarverkefni. Viðskiptavinir okkar elska að geta séð raunverulegan kostnað við bíla, vinnuföt og verkfæri.

Birgjar: allir birgjar á einum stað

Undir síðunni Birgjar getur þú séð mínar síður frá öllum birgjum á einum stað. Rafrænir reikningar frá þeim tengjast sjálfkrafa réttum birgi, svo þú sérð auðveldlega hvaðan efnið kom og hvað þú keyptir hjá hverjum.

Þetta gefur þér yfirsýn yfir efniskaupin þín í heild, ekki bara á einstökum verkum heldur líka hjá hverjum birgi. Þú sérð samhengið á bak við efniskostnaðinn og hefur allt á hreinu þegar þú vilt bera saman verð eða semja um kjör.

Skjáskot: birgjaskrá með mínum síðum frá öllum birgjum

Birgjaskrá í Unni með mínum síðum allra birgja

Efnið fer alla leið: frá birgi að verkkaupa

Efnisstýringin stendur ekki ein og sér. Rafræni reikningurinn frá birgi kemur inn, parast við verkið og er svo tilbúinn til að fara áfram inn á sölureikninginn til verkkaupans, með þínum afslætti og þinni álagningu. Efnið ferðast í gegnum kerfið án þess að þú slærð sömu tölurnar inn oftar en einu sinni.

Sömu reikningarnir geta líka byggt upp lagerinn þinn, svo efnið sem þú kaupir oft verður að lagervöru sem þú getur tekið beint á verk. Þannig vinna efnisstýring, lager og reikningagerð saman í stað þess að vera þrjú aðskilin verkefni sem þú heldur utan um í höndunum.

Náðu tökum á efniskostnaðinum

Prófaðu Unni frítt í 30 daga. Enginn uppsetningarkostnaður, engin binding og þjónustan er alltaf frí.