Um okkur
Unnur er íslenskt nýsköpunarfyrirtæki stofnað árið 2025 á Akureyri. Við þróum stafrænar lausnir sem eru sérsniðnar að þörfum verktaka og iðnaðarmanna, hannaðar af fólki sem skilur áskoranir iðnaðarins af eigin raun.
Sagan
Hugmyndin að Unni varð til á verkstaðnum. Júlíus, annar stofnenda fyrirtækisins, starfaði hjá pípulagningafyrirtækinu Hiti ehf. og upplifði þar hversu gríðarlegum tíma var eytt í reikningagerð og utanumhald. Fyrsta lausnin var einfalt Excel-skjal sem hann hannaði til að létta vinnuna, en fljótlega varð ljóst að iðnaðurinn þurfti mun öflugra tól.
Þannig fæddist Unnur Verkbókhald: Lausn sem samþættir tímaskráningu, efnisstýringu og sjálfvirka reikningagerð í eitt kerfi. Markmið okkar er að minnka þann tíma sem fer í reikningagerð hjá fyrirtækjum í byggingariðnaði.
Unnur er hluti af Drift EA nýsköpunarsamfélaginu á Akureyri. Hugmyndin fékk fjármögnun frá Drift EA og styrk frá SSNE.
Teymið

Friðrik Snær Björnsson
Þróunarstjóri
Útskrifaðist með BSc í hugbúnarverkfræði. Vann við þróun á fjármálalausnum fyrir Símann Pay.
fridrik@unnurverk.is
861-7499

Júlíus Þór Björnsson Waage
Framkvæmdastjóri
Útskrifaðist með BSc í byggingarverkfræði. Hefur starfað á verkfræðistofum COWI og VSB. Var með umsjón yfir verkbókhaldi pípulagningafyrirtækisins Hiti ehf.
julius@unnurverk.is
841-8770
Upplýsingar