
Öll gögn flæða beint á reikninginn
Tímar, efni, akstur og lager sem skráð voru á verkið koma sjálfkrafa inn á sölureikninginn. Þú byrjar ekki á auðu blaði og slærð ekkert inn upp á nýtt. Reikningurinn er nánast tilbúinn áður en þú byrjar að vinna hann.
Yfirfarið og sent á mínútum
Þú ferð yfir reikninginn, lagfærir það sem þarf og sendir. Það sem áður tók heilt kvöld tekur nú nokkrar mínútur. Reikningagerð mánaðamóta getur farið úr um 30 klukkustundum niður í um 30 mínútur.
Minni tími, meiri framlegð
Ekkert gleymist, allt rukkað
Allt sem var skráð á verkið skilar sér á reikninginn, svo enginn tími dettur út og ekkert efni gleymist. Skráningin fer ekki af verkinu fyrr en búið er að rukka hana.
Efnissala og vinna aðgreind á sama reikningi
Unnur aðgreinir efnissölu og vinnu á sama sölureikningi. Þú sérð skýrt hvað er selt efni og hvað er unnin vinna, hvort í sínu lagi. Reikningurinn verður gegnsær og framlegð af efnissölu og vinnu helst aðskilin. Þú þarft hvorki tvo reikninga né handreiknaða skiptingu.
Þú ræður hvað af afslættinum fer áfram til verkkaupans
Rafrænu reikningarnir frá birgjum bera með sér allar upplýsingar um kaupin, líka afsláttinn sem þú hefur samið um. Unnur les hann inn, svo þú sérð hvað þú borgaðir fyrir efnið og hvaða kjör þú fékkst.
Þú stillir hversu stór hluti afsláttarins fer áfram á sölureikninginn og kerfið reiknar allar línurnar. Ef þú áframselur helminginn verður 40% afsláttur að 20% og 10% að 5%. Þú velur líka hvort afslátturinn birtist eða hvort verkkaupinn sér aðeins verðið sjálft.

Beint í bókhaldskerfið þitt, eða alla leið til verkkaupans
Þegar reikningurinn er tilbúinn fer hann yfir í bókhaldskerfið þitt. Unnur talar við Payday, dk, Reglu, Konto og Catacloud, svo þú slærð ekkert inn tvisvar og bókhaldið er í réttu horfi um leið.
Með reikningnum fylgir sundurliðað fylgiskjal með vinnunni, efninu, tækjunum og akstrinum. Þú getur látið reikninginn bíða í bókhaldskerfinu til yfirferðar eða sent hann alla leið til verkkaupans.
Ingi
N.hansen
„Unnur hefur stytt tímann sem fer í reikningagerð um mánaðamót um 95%.“

Hættu að eyða kvöldunum í reikninga
Prófaðu Unni frítt í 30 daga. Enginn uppsetningarkostnaður, engin binding og þjónustan er alltaf frí.